Afþreying
Langabúð
Langabúð er Menningarmiðstöð Djúpavogs, gamalt vörugeymslu- og sláturhús með nýtt hlutverk. Í húsinu er Safn Ríkarðs Jónssonar myndskera, Minningarstofa um Eystein Jónsson og Sólveigu Eyjólfsdóttur, Veitingasala og minjagripasala á vegum Kvennasmiðjunnar.

Papeyjarferðir
Papeyjarferðir hf bjóða upp á ferðir út í Papey frá byrjun júní fram í september. Hver ferð tekur um fjórar klukkustundir. Fjölskrúðugt fuglalíf er í eyjunni og mikil náttúrufegurð. Eyjan Papey á sér líka langa og merka sögu sem ferðalangar úti í Papey fá að heyra í ferð þeirra undir leiðsögn um eyjuna. Enginn verður ósnortinn af ferð út í Papey.

Golf
Golfvöllur Djúpavogs er skammt frá Djúpavogi, á Hamri í Hamarsfirði. Völlurinn er níu holur og er hann staðsettur í einstaklega fallegu umhverfi klettahamra.

Sjóstangveiði eða sjóstrandveiði
(VINSAMLEGA pantið með viku fyrirvara).
Hótel Framtíð hefur til umráða tvo góða báta á sjóstöng. Hægt er að biðja um mislangar ferðir, þó minnst tvær klukkustundir. Stutt er á miðin og góð veiði. Þetta getur verið frábær skemmtisigling og góð afþreying. Farið er alla daga vikunnar ef veður leyfir.
Gönguleiðir
Fjöldi gönguleiða er um Djúpavog og nágrenni. Í gestamóttöku liggur frammi gönguleiðakort af nágrenni Djúpavogs fyrir þá sem áhuga hafa á að fara í lengri eða skemmri göngutúra.
Við viljum benda á að ganga á fjallið Búlandstind er frekar auðveld og hreint út sagt stórkostleg lífsreynsla.

Sund
Sundlaug Djúpavogs er skammt frá hótelinu. Ný GLÆSILEG SUNDLAUG OPNAÐI Í DESEMBER 2002
